31 ágúst 2008

Fjórhjól.

Já. Það er sko komið að því.
Það er komið að því að ég fer að blogga hér um fjórhjól.
Þannig er mál með vöxtum að ég er og hef verið fjórhjólasjúklingur frá því að hann faðir minn heitinn keypti Suzuki mink LT-250 árgerð 1986.
Hjólið á myndinni er ekki mitt hjól (sem pabbi heitinn keypti) heldur af nákvæmlega eins hjóli sem Gulli nágranni minn á Söndum átti, og síðar Hinrik stór vinur minn og trommari.



En senn kemur að því að ég "þurfi" að fá mér fjórhjól. Á þessari mynd eru nokkur glæsileg tæki sem eru ansi fýsilegur kostur, hvert þeirra á sinn hátt.
Svo nú er bara að hugsa málið vel og vandlega.

Þessi "fyrsta" fjórhjólafærsla verður ekki löng vegna þess einfaldlega að ég á ekkert fjórhjól ;-) en það kemur sko til með að breytast.

Það eru til nokkrar íslenskar fjórhjólasíður og þar skrifa nokkrir kunningjar mínir um fjórhjólin sín og ferðir sem þeir hafa farið á þeim. Þar eru líka allskonar flottar myndir frá þeim.

Meira síðar.

Palli.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta verður mjög spennandi hjá þér kæri bróðir. Ég fylgist spennt með, og þegar þú ert búinn að kaupa, heldurðu að þú leyfir ekki litlu systur og hennar maka að taka í kvikindið????
Knús, Ingunn systir

pallilitli sagði...

Jú jú. Ef þið getið keyrt það án þessa að velta því eða slasa ykkur á því. Mig minnir nú að þér hafi nú tekist að keyra gamla hjólið án þess skemma það mikið :-)

Nafnlaus sagði...

Sko þig Palli minn (eða sko Palli hennar Helgu) bara farinn að blogga....og það um fjórhjól.
Knús í krús :) Hafdís

Nafnlaus sagði...

Til lukku með þetta palli.Þetta er bara nokkuð flott síða og það verður gaman að fylgjast með skriftum þínum hérna.