08 maí 2005

Það var grillveisla hjá starfsmönnum GT (glæpa tækni) verktaka hér við Kárahnjúka í gærkvöldi og þetta líka fínasta lambalæri var grillað. Og auðvitað var mikið fyllerí (eins og venjuleg) sem er frekar leiðinlegt sko. Sumir hérna verða einfaldlega of fullir og þar af leiðandi of leiðinlegir. En Maturinn var góður. Já já.

Sverrir var að segja mér að kaupa MORLEY wah wha (vává) pedala fyrir bassann svona af því að ég er að splæsa í brand njúv magnara. MORLEY er víst mjög gott og þekkt merki. Ég hugsa bara að ég geymi það í smá tíma að kaupa þá græju.

Gestur númer 10000 á síðunni fær verðlaun :) Jibbíííí.

En hvernig væri það ef zetorar færu nú að spila á einu balli eða svo?
Er stemming fyrir því?

Engin ummæli: