Það er ýmislegt að gerast í heimi fjórhjólaáhugamanna.
Þar má helst nefna að götuskráning er orðið eitthvað sem flestir geta gert. Þ.e.a.s. ef maður á fjórhjól sem kemur til landsins eftir að götuskráningarlögin tóku gildi 14.06.2006.
Þetta er eitthvað sem ég myndi ekki hika við að nýta mér ætti ég fjórhjól nú sem flutt var inn eftir þennan tíma. Ekki spurning.
EN svo er slatti af nýju dóti að koma. Til dæmis POLARIS SPORTSMAN 850XP sem er nýtt hjól að 99% hluta.Hvorki meira né minna en 70 hestafla mótor í þessu skrímsli og gríðarlega góð fjöðrun í því segir Douglas Meyer hjá ATVTV.COM
Já, hvorki meira né minna segi ég.
Eins er líka komið, en dálítið síðan, nýtt fjórhjól frá
Arctic Cat sem heitir Thundercat 1000 H2 en þeir hjá Arctic Cat neita að gefa upp hversu mörgum hestöflum þessi 951 ccm mótor hleypir frá sér.Þetta er eitt af hjólunum sem verða prófuð á ATV TV síðunni núna í haust. Ég hlakka mikið til að sjá dómana sem það fær.
Búið í bili.
Brumm brumm (bless bless)


