Jú jú.
Eða eins og Steinn Ármann sagði í einum Limbóþættinum fyrir mörgum árum.
En málið er að nokkrar af myndunum við bloggin hér að neðan hafa horfið.
Það hefur sennilega einhver stolið myndunum mínum. Fuss og svei bara.
Ég ætla nú ekkert með þetta í lögregluna en ég er búinn að skrifa þeim hjá gúggl (google) og þeir ætla að skoða málið og reyna að finna myndirnar aftur.
Þetta er nú meira ruglið. En þið afsakið vonandi, vona ég.
Reyndar er alltaf hægt að skoða myndirnar inni á en ég vil benda á að ég á þessar myndir... sem þýðir að til þess að fá afrit af þeim þarf að tala við mig, samkvæmt höfundarréttarlögum.
Kveðja,
Palli.
Radio PSB
04 mars 2009
27 febrúar 2009
Can-Am Outlander 800 MAX LDT EFI
Sælt veri fólkið.
Nú er komin enn meiri pressa á mig að fara að fá mér fjórhjól (svona alvöru með BIG BORE mótor) því það var að bætast hjól í hópinn hér á Hvammstaga. Pétur Arnarsson var nefnilega að fá sér eitt stk. CanAm Outlander 800 MAX LDT EFI skráð í nóvember 2007. Svo það er nokkuð nýlegt það hjól.
Þessu tveggja manna tæki fylgja tveir dekkjagangar, annars vegar original dekkin sem eru á 12" felgum og hins vegar 195/65 R15 fólksbíladekk en það er eitthvað skárra að keyra um á þeim á malbikinu.
Þá er tækið búið Garmin GPS tæki, spili, hita í handföngum og bensíngjöf (þumli) svo fátt eitt sé nefnt. Varla þar að taka fram að hjólið er götuskráða en best að nefna það samt. Þetta tæki er götuskráð :-)
Við fórum svo upp í Vatnsnesfjall, ég á Súkkunni hans Hinna, Hlynur á Pollanum sínum og Pétur á nýja Can-Am hjólinu sínu. Fórum fyrst upp í Brunagil (tilvalið að kalla það Brunagil því samkvæmt kortinu hjá www.ja.is er holtið sunnan og austan við þetta gil kallað Bruni). Það er nokkuð bratt gil og þar var Can-Am hjólið prófað fyrst. Ekki gekk nú alveg nógu vel að aka þar um svo hleypt var lofti úr dekkjunum. Þá fóru hlutir að ganga betur.
Þar næst brunuðum við upp að Hnausum sem eru holt vestan Fjalagils og sunnan Káraborgar. Sunnan við Hnausa þessa er svo endurvarpsstöðin sem allir sem hafa farið upp á Vatnsnesfjall vita hvar er en endurvarpsstöð þessi stendur á svokölluðum Fjalagilshæðum í ca 550 metra hæð yfir sjó.
Þar var svo ýmislegt prófað. Nýja hjólið mælt út, meiru lofti hleypt úr dekkjunum, gefið í botn til að athuga hvað það kæmist í mjúkum en þó þéttum snjó, meiru lofti hleypt úr dekkjunum, festa hjólið, losa hjólið og svoleiðis voru nokkrar æfingar gerðar. Rétt er að taka fram að það var ekki bara Can-Am hjólið sem festist, Polaris og Suzuki festust líka. O sei sei já.
En svo var ákveðið að leggja í hann á hæsta tind Vatnsnesfjalls, sjálft Þrælsfell.
Það var frekar þungt færið þangað upp en með smá krókaleiðum, dálítillri þolinmæði og nokkrum bensíndropum tókst okkur að keyra þangað upp.
En ég verð nú að monta mig aðeins því fyrr um daginn hafði ég farið þangað einn. Svo ég er búinn að fara fjórum sinnum á Þrælinn. Tvisvar á vélsleða og tvisvar (sama daginn) á fjórhjóli. Personulegt met það :-)
Hér eru svo myndir úr ferðinni. http://picasaweb.google.com/pallibj/PalHlyPe#
Njótið.

08 febrúar 2009
Fjórhjólamessa í Jötunheimum.
Nú segi ég bara eins og Fjórhjólamaðurinn:
Jaksemash.
Ég fór á þessa fjórhjólamessu. Fjórhjólamessu já. Enginn var nú presturinn þarna og ekki voru nú mörg hjólin. En nokkur hjól voru þarna á svæðinu þó og flest þeirra vel útbúin... enda björgunarsveitahjól sem verða víst að vera vel útbúin... svo ekki þurfi mikið að bjarga þeim hehe.
Myndir eru inni á myndasíðunni http://picasaweb.google.com/pallibj/FjorhjolamessaIJotunheimum#
Svo vil ég endilega minna á síðuna hans Hlyns. Þar eru myndir frá ferðalagi sama dag og fjórhjólamessan var. Björgunarsveitin Húnar stóð fyrir einhverskona fjölskyldu degi á Vatnsnesfjallinu. Farið var alla leið upp á Þrælsfell ef rétt ég skil.
Njótið vel.

07 febrúar 2009
02 febrúar 2009
Úggabúgga.
Já var það ekki bara?
Við Hlynur fórum í fjórhjólaferð á sunnudaginn 1. febrúar frá Húki í Vesturárdal yfir til Brandagils í Hrútafirði. Brjálað banastuð var í þessari ferð. Við fórum báðir á Polaris Sportsman 800 EFI. Hann auðvitað á sínu hjóli en ég á hjólinu hans Þorgeirs frá Eyjanesi.
Þetta var mikið stuð og Pollarnir eyddi bara þónokkuð miklu bensíni þessa ferð :-)
Hér eru svo myndirnar http://picasaweb.google.com/pallibj/Fjorhjolaferd1Februar2009#

09 janúar 2009
Fjallafjórhjólaferð.
Já sá dagur er liðinn sem veðurspáin í bloggfærslunni hér að neðan á við um.
Ég skutlaðist í Vatnsnesfjallið í dag á Minknum hans Gumma á Jaðri.
Upphaflega ætlaði Hlynur að koma með en hann var fjarri góðum rannsóknarleiðangri því hann var veikur og steig því ekki einu sinni litlu tá út fyrir hús.
Færið var furðulegt fyrir þær sakir að það var allt mar autt á Hvammstanga. Svo þegar ég kom upp að hesthúsahverfi þá var aðeins grátt á vegi. Eftir því sem ofar dró varð hvítara og hvítar. Þegar ég var kominn uppfyrir hliðið í Helguhvammi þá tók við nánast aurbleyta í hjólförum. Það hefur einhver lagt af stað í fjallið á jeppa núna í hlákunni og sporað ágætlega í hjólförum vegarins. En svo auðvitað eftir því sem ofar dró í fjallið varð snjórinn harðari og harðari. Í efstu brekkum var snjórinn grjót harður. Svo harður að Bearclaw dekkin undir hjólinu varla gripu í.
Skyggnið var svo sem ágætt en þegar ég var kominn upp að endurvarpsstöð (sem stendur á hæð sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir) þá fór að dimma með éljum.
Minkurinn stóð sig með hetju og fór nánast allt sem ég sagði honum að fara.
Þetta var ágætis ferð og ég hlakka mikið til að fara aftur, en þá mættu vera fleiri með í för.
Fleiri myndir eru hér: http://picasaweb.google.com/pallibj/FjRhjLafjallaferVatnsnes#
Takk og bless.

06 janúar 2009
Fjallið á föstudaginn???
Já gleðilegt ár góðir lesendur og velkomnir hingað að blogginu.
Við Hlynur erum að spá í að fara kannski í Vatnsnesfjallið á föstudaginn. Það er nefnilega ekkert svo slæm spá fyrir föstudaginn en leiðindar spá fyrir helgina.
Fákarnir eru farnir að stirðna við að það eitt að standa aðgerðarlausir og óhreyfðir svo nú er rétti tíminn til að gera eitthvað... áður en veður versnar.
Þeir sem nenna og vilja koma með mega það ef þeir vilja.
Við erum svo sem ekki búnir að ákveða hvort við förum eða þá hvenær en það kemur í ljós með tíð og tíma.
Hér er svo spáin fyrir föstudaginn. Fengið hjá Veðurstofu Íslands
Takk fyrir og góðar stundir.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)